Fagmennska
Góð þjónusta
Opið virka daga
9-12 / 13-17
Sala og ráðgjöf við kaup á stjórntækjum fyrir loftræsi-, hita- og kælikerfi hafa ætíð verið sérgrein Varma, allt frá einföldum stýringum upp í flókin hússtjórnarkerfi. Starfsmenn búa yfir sérþekkingu á þeim búnaði sem í boði er og veita aðstoð við val á tækjum. Fyrir utan tæknibúnað bjóðum við nú tilbúin stjórnkerfi með rafskápum.
Tæknilausnir okkar eru af ýmsum toga. Með sumum tækjabúnaði fylgja stjórnkerfi sem heildarlausn t.d Gold-loftræsisamstæðurnar. Ef búnaður með stjórntækjum er ekki seldur sem heildarlausn bjóðum við upp á að forrita stjórnstöðvar (regla) og tengimyndir fyrir þær. Einnig bjóðum við upp á hönnun og teikningar fyrir stýriskápa hinna ýmsu kerfa og smíði á stýriskápum ef þess er óskað.
Hjá okkur starfar raflagnahönnuður með hönnunarleyfi. Hann hefur mikla reynslu af hönnun raflagna og stýringa í iðnaði, auk almennra raflagna (ljós og kraftur) í byggingum. Ef á þarf að halda getum við boðið upp á fjölþætta ráðgjöf, hönnun og teikningar fyrir raflagnakerfi.
Kerfismynd af hausaþurrkun (fiskur)
Stjórnskápar fyrir hausaþurrkun